Wednesday, 14 February 2007

Fyrir brottför:

1)Lykill sóttur og greiðsla innt af hendi að Garðastræti 8.
Heimasími er 552 5326. Ef ekki svarar þar næst yfirleitt í Gunnar
í gemsa 698 3526. Þessi númer er nauðsynlegt að hafa með út, ef eitthvað skyldi bjáta á.

2)
Símanúmer í íbúðinni í París:
Ef hringt er frá Íslandi: 00 33 1 44 78 95 56
Ef hringt er innan Frakklands: 01 44 78 95 56
Heimilisfang: C/O M. Halldórsson; 23 rue Meslay; 75003 Paris

Kóði við útidyr eftir klukkan 8 að kvöldi og á sunnudögum: 48964. (Annars bara “P”)
Gengið er inn úr porti fyrsta stigagang til hægri. Dyrabjallan fyrir íbúðina er merkt KATZ.
Lyftan nær upp á 6. hæð – íbúðin er á 7. hæð til vinstri.
3)Nóg er af handklæðum og rúmtaui í íbúðinni. Sjálfsagt er að hafa með sér regnfatnað en regnhlífar eru til staðar.

Það eru net-kaffihús út um alla borg, ef fólk nennir ekki að hafa með sér fartölvuna.

Allt áfengi er ódýrara í búðum í París en í fríhöfninni í Keflavík. Aftur á móti eru snyrtivörur og tóbak á betra verði í fríhöfninni.
Eftir lendingu:1)Lestin frá Charles de Gaulle flugvelli inn til Parísar kostar 9.50 evrur á mann. Enginn afsláttur er fyrir börn né námsmenn. Miðinn gildir í innanbæjarlestina líka.
Leigubíll frá flugvellinum að Meslay-götu kostar að jafnaði 40 – 70 evrur. Það fer mikið eftir umferð og oft eru teppur á aðalæðum sem geta tafið ferðina og aukið kostnaðinn.
Sumir leigubílstjórar taka aukagjald fyrir ferðatöskur. (Eina eða tvær evrur fyrir hvern pinkil.)

A) Við mælum með lestinni:

Frá tollhliði eru góðar merkingar að ókeypis sporvagni að lestarstöðinni – sú ferð tekur 5 mínútur.
Lestarpallurinn er vel merktur. Lestir renna hjá á u.þ.b. tíu mínútna fresti, á tveim sporum beggja vegna pallsins, báðar til Parísar. Yfirleitt fer önnur hver lest beint inn í borg og er u.þ.b. 25 mínútur á leiðinni; hin stoppar í öllum útborgum og tekur u.þ.b. 40 mínutur.
Farið er úr lestinni á fyrstu stöð í París, Gare du Nord. Skilti blasa við alstaðar með “M” í hvítum hring og vísa á mismunandi metrólínur. Fylgið skiltunum að hinni appelsínugulu línu M-5 og veljið "direction" Place d’Italie. Hámarksbið eftir lest er 5 mínútur. Þriðja stopp lestarinnar er République þar sem hoppað skal út. Fylgið svo bláum skiltum Sortie til að komast út undir bert loft. Hvar sem komið er út blasir við styttan á Lýðveldistorginu miðju. Kona sú horfir í átt að götunni Rue de Temple. Fyrsta gata til hægri frá henni er Rue Meslay – ef töskur eru þungar og fætur lúnir gæti tekið sex mínútur að rölta að réttu húsi, nr. 23.
Hámarkstími ferðalagsins frá tollhliði, með öllum biðstundum, er u.þ.b. einn og hálfur klukkutími – frekar þó einn ef allt gengur snurðulaust.
B) Ef valinn er leigubíll:

Fylgið merkingum að “Taxi to Paris”. Venjulegir 5 manna fólksbílar taka ekki fleiri en þrjá farþega. Allir leigubílar sem þarna eru í boði starfa hjá leigubílastöð - langflestir bílstjórarnir heiðarlegir og keyra eftir mæli. Samt er alltaf ráð að inna bílstjórann eftir verði og tíma (sem þeir reyndar geta ekki gefið nákvæmt), og farangursgjaldi – þeir eru flestir mellufærir á ensku. Nefnið eða sýnið heimilisfangið og takið fram að gatan sé í 3. hverfi (arrondissement) Parísar, við Place de la République.
Ómögulegt er að lofa nokkru um ferðartíma – en hann er lágmark 40 mínútur.
Aðvörun: Gætið þess að fara ekki upp í bíl hjá leigubílstjórum sem standa inni í flugstöð og veiða farþega. Þeir svindla og okra.

2)
Í íbúðinni er til staðar vatn, gos, kaffi, bjór, rauðvín og hvítvín. Hverjum gesti er velkomið að neyta þess sem vill þegar hann kemur þreyttur eftir flug og töskuburð -
en lofar að fylla á í staðinn svo næstu gestir njóti sömu þæginda.Umgengnisreglur
Reykingar eru ekki leyfðar nema út um glugga við gust – og algjört skilyrði að næsti gestur finni enga lykt.

Gestir eru beðnir að taka vel til eftir sig og setja óhreint leirtau í uppþvottavél. En þrif og þvottar er innifalið í leiguverði.


Ýmsar upplýsingar

1)
Hér er linkur inn á góða túristasíðu með almennar upplýsingar um París:http://en.parisinfo.com/
Hér er linkur inn á upplýsingasíðu um 3. hverfi:
http://en.parisinfo.com/paris-sightseeing/visit-the-marais-district/

2)
Tengill að neti liggur á skrifborðinu. Aðgangsorð að þráðlausri tengingu er skráð neðan á ráternum sem er í neðstu bókahillu til vinstri.
Fjarstýringar að sjónvarpi, dvd-spilara og myndlykli fúnkera alveg eins og heima á Íslandi.

3)
Metromiðar gilda í metróið sjálft auk RER og strætisvagna (RATP). Hagstætt er að kaupa vikukort - þau gilda frá mánudegi til sunnudags og kosta 16 evrur. (Passamynd þarf á kortið en á flestum metróstöðvum er ljósmyndasjálfsali.) Aldrei skal kaupa staka farmiða, heldur þá frekar “carnet” (borið fram “kar-ne”) sem eru tíu miðar saman í búnti og miklu ódýrari. Til eru líka ferðamannakort (metro og söfn) sem fást á túristaskrifstofum (t.d. í Pompidou), í bókabúðunum Fnac (sú næsta í Les Halles) og á metróstöðvum.
Sjá nánari upplýsingar hér (á ensku).
4)Í einhverri bókahillu í borðstofunni eru þrjú eintök af metróbókum, gestum til gagns. Þar er hægt að fletta upp öllum götum í París.
5)Besta matvöruverslunin: Monoprix á rue de Temple gegnt samnefndri metróstöð. Í þessari búð eru kjötborð og ostaborð í hæsta gæðaflokki. Gaman er samt að fara á markað til að kaupa kræsingar í matinn. Einn sá elsti í París er rétt hjá, á Rue de Bretagne, á móti ráðhúsi 3. hverfis, og heitir Le Marché des Enfants Rouges (opið frá því morguns fram yfir hádegi).
6)
Besta bakaríið í nágrenninu er á rue Faubourg de Temple, fyrsta götuhorni hinumegin við Place de la Republique. Sumum finnst venjulegt “baguette” best, en allir ættu samt að prófa “tradition” sem er bakað eftir hefðbundnum aðferðum og dekkra.

Veitingahús:

A) Í næsta nágrenni er eitt þekktasta veitingahús í París, og dýrt eftir því, eða svona u.þ.b. með sama verð og tíðkast á Íslandi. Það heitir Ami Louis og býður franskan matseðil - og þar verður að panta borð með löngum fyrirvara. Allar upplýsingar að finna hér:
http://uk.holidaysguide.yahoo.com/p-travelguide-1978759-action-describe-ami_louis_l_paris-i

Stysta leið þangað: Upp götuna til vinstri þegar komið er út úr 23 Meslay, u.þ.b. 50 metra, þar sem er Passage du pietons aux Biches, þ.e. port og tröppur, til vinstri. Niður tröppurnar, beint áfram að öðru götuhorni og þar til hægri að öðru húsi.

B) Á sama götuhorni í óhrjálegu húsi er argentískur veitingastaður sem er líka vinsæll og frægur, og mjög góður, þó hann líti út eins og mötuneyti á verkstæði!

C) Við mælum alltaf með Le Petit Prince de Paris í 5. hverfi. Franskur, huggulegur og sérlega góður, og ekki of dýr. Best að panta. Þið finnið hann hér:
http://ssa.paris.online.fr/pages/restaurants1.htm

D) Hér eru tveir ágætir “hversdags” staðir fyrir þá sem nenna ekki að laga sér mat en vilja samt ekki eyða miklum peningum; báðir í 15-20 mínútna göngufæri - og á báðum er mjög stutt bið eftir matnum:
Chez Hanna er gyðingastaður. Hann er á Rue des Rosiers nr. 54. Falafell Speciale er sniðugasti rétturinn.
Les Marronniers er franskur og býður upp á alls kyns smárétti. Hann er á Rue des Archives nr. 18.

E) Rue Mouffetard í 5. hverfi er ein skemmtilegasta gata Parísar með alls kyns verslunum og veitingahúsum. Flestir staðirnir þar bjóða upp á franska sérrétti frá ýmsum héruðum.

F) Þeir sem aldrei hafa verið í París áður ættu að rölta um hverfið sem túristar kalla Latínuhverfið en er í raun aðeins hluti af því hverfi. Þetta er svæðið sem afmarkast af Signu og Boulevard st. Germain annars vegar, og Boulevard st.Michel og Rue st. Jacques hins vegar. Frökkum sjálfum finnst reyndar lítt til hverfisins koma enda eru þarna nánast eingöngu túristar – en veitingastaðir í hverju húsi frá öllum heimsálfum, og eigendurnir standa úti á götu og reyna að lokka til sín viðskiptavini. Matseðlar yfirleitt ódýrir en vín getur dregið upp kostnaðinn.